Við ætlum að byrja á að fara út í Eiði. Einhverjar líkur eru á Eiðisþoku en er það ekki bara betra? Hittumst við afleggjarann á Ytra-Lóni klukkan 10. Síðan er meiningin að koma við á Sauðanesi, þar sem er starfrækt minjasafn og þeir sem vilja geta skoðað kirkjugarðinn og auk þess er kirkjan þess virði að skoða hana. Á Sauðanesi er starfrækt veitingasala þannig að fólk getur fengið sér hádegissnarl þar. Við stefnum að vera á Sauðanesi um 11. Eftir það liggur leiðin í Sætún og Hallgilsstaði og að lokum í Syðri-Brekkur, þar sem Kristín ætlar að taka á móti okkur.
Eftir þetta er frjáls tími, jafnvel leikir, við högum bara seglum eftir vindi, fram að kvöldmat.
fimmtudagur, 26. júní 2008
Syðri-Brekkur
"Syðri-Brekkur voru að fornu mati 16 hundraða jörð. Bærinn stendur undir Brekknafjalli. Það er að vestan allbratt en ekki ýkjahátt. Töðugraslautir og bollar eru þar víða og mjög skjólgott. Tún var grasgefið og spratt snemma, naut þar skjóls og raka frá fjallinu, engjar nærtækar og jörðin talin sæmileg heyskaparjörð, úthagar nægir en útigangur lélegur, rekavon góð. Sama ættin hefur byggt Syðri-Brekkur síðan 1795."
Niðjatalið er komið út
Þeir sem ekki verða á staðnum, en vilja kaupa niðjatal, geta lagt inn á mig pening og ég sendi þeim ritið.
Söngskráin er einnig tilbúin. Ég hef þegar rekist á eina villu, enda töluvert minna í hana lagt en niðjatalið. Vona að mér verði fyrirgefið það.
miðvikudagur, 25. júní 2008
Eiði
"Eiði var að fornu mati 27 hundraða jörð. Bærinn stendur við Eiðisvík, norðan við allstórt og djúpt vatn, Eiðisvatn, sem liggur milli Naustans og Heiðar- og Hrollaugsstaðafjalla. Afrennsli er úr vatninu í sjó og gengur silungur í vatnið."Við ætlum að heimsækja Eiði á laugardaginn, þessi fróðleikur og miklu meira er í niðjatalinu sem ég er að fara að sækja í prentsmiðjuna núna á eftir.
Veðrið
Veðurstofan segir þetta um helgarveðrið:
Á laugardag og sunnudag:
Norðlæg átt, yfirleitt 8-13 m/s og rigning með köflum, en lengst af þurrt og bjart veður SV-lands. Hiti 5 til 14 stig, hlýjast suðvestantil.
Ekkert mjög spennandi þannig að það má ekki gleyma flíspeysunni, pollagallanum og stígvélunum heima.

föstudagur, 20. júní 2008
Nammi namm
Ég minni á matseðilinn:
Forréttur: Kúffisksúpa borin fram með salati og brauði.
Aðalréttur: Grillaðar svína- og lambalærasneiðar með bökuðum kartöflum, salati og öðru meðlæti.
Eftirréttur: Frönsk súkkulaðikaka borin fram með rjóma, ís og ávöxtum.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)