Eins og áður segir er niðjatalið farið í prentun. Hins vegar verður gefinn út geisladiskur með aukaefni og meiningin er að á hann verði sett rafræn útgáfa af niðjatalinu þannig að það er hægt að bæta inn í það. Sá diskur verður ekki útbúinn fyrr en eftir mót þannig að við getum rætt hvað verður á honum um aðra helgi :)
Þetta verður veglegt rit - og diskurinn ekki af verri endanum heldur - og herlegheitin eiga að kosta tvöþúsund krónur. Einhver kom með þá hugmynd að greiða þetta fyrirfram og þar sem það myndi spara mér þó nokkra fyrirhöfn, þá samþykkti ég þá hugmynd og nú þegar eru tíu eintök seld! Ef þið viljið kaupa þetta fyrirfram, þá megið þið leggja inn á mig tvöþúsund krónur (og gjarnan láta senda mér tölvupóst í leiðinni) og ég færi það til bókar. Ef þið sem ekki getið komið viljið kaupa eintak, þá er það auðvitað velkomið líka, mér væri ánægja að senda þetta til ykkar.
Reikningsnúmerið sendi ég til ykkar í tölvupósti.
fimmtudagur, 19. júní 2008
miðvikudagur, 18. júní 2008
Niðjatalið
Nú er niðjatalið komið í prentun þannig að það verður ekki aftur snúið úr þessu. Vonandi verða allir ánægðir með það, ef ekki, þá verður það lagað næst. Bestu þakkir til allra sem aðstoðuðu mig við þetta verk, það eru þó nokkrir sem eiga eitthvað í því.
föstudagur, 13. júní 2008
fimmtudagur, 12. júní 2008
Langanes
Mig langar að benda á smá fróðleik um Langanesið. Á vef Langanesbyggðar eru myndir og fróðleikur og einnig á vef Norðurleiða. Eftirfarandi fróðleikur er af Wikipediu.
"Langanes er stór skagi fyrir austan Þistilfjörð og norðan við Bakkaflóa. Skaginn teygist næstum 40 km út í hafið til norðausturs, allbreiður vestast en mjókkar út í örmjóan bjargtanga austast sem heitir Fontur. Framnes er sá hluti Langaness kallaður, sem er sunnan Þórshafnar, miðnes út að Eiðisskarði en utan þess útnes. Öll býli á útnesinu eru nú komin í eyði. Nesið hefur ávallt verið strjálbýlt, stærsta byggðin er sjávarþorpið Þórshöfn á vesturströndinni.
Lág fjöll og fell liggja norður eftir Langanesi, 200-400 m há og er austurhlutinn er miklu hálendari og undirlendi lítið. Gunnólfsvíkurfjall er hæsta fjallið, 719 m. Nálægt miðju nesinu er Eiðisskarð, sem sker fallgarðinn. Að norðanverðu er Langanes láglent og er breiðasta undirlendið frá Sauðanesi og út að Heiðarfjalli. Útnesið er víða grýtt og hrjóstrugt en að sunnanverðu er það betur gróið. Fjöllin eru úr móbergi að suðaustanverðu en að öðru leyti er nesið úr grágrýti. Láglendið skiptist að mestu í mýrar, grýtta mela og holt. Nokkrar sjaldgæfar jurtategundir vaxa á Langanesi svo sem flétta ein sem kallast klettakróða.
Mikið fuglalíf er á Langanesi, það eru einkum lundi, langvía, álka, teista, fýll og rita sem verpa þar í fuglabjörgum. Undir Skoruvíkurbjargi er klettadrangur, sem heitir Stórikarl og er þar eina súlubyggðin á þessum slóðum.
Bandaríkjaher rak ratsjárstöð á Heiðarfjalli 1954-68. Önnur ratsjárstöð á vegum NATO var reist á Gunnólfsvíkurfjalli 1989."

mánudagur, 2. júní 2008
Styttist í ættarmótið
Nú styttist í ættarmótið, aðeins tæpar fjórar vikur þar til við hittumst. Vinna við niðjatalið er í fullum gangi, gagnaöflun langt komin og töluverður hópur fólks situr sveitt við að skanna inn myndir og skrifa texta, sem ég svo set inn í skjalið. Einnig er tilbúin (held ég örugglega) leikjadagskrá sem hægt verður að grípa til þegar við komum til baka úr skoðunarferðinni á laugardeginum.
Þann 30. maí fjölgaði í hópnum, þegar Önnu Helgu og Kára fæddist dóttir, 14 merkur og 50 cm ef ég man rétt. Hjartanlega til hamingju með dótturina, bæði tvö (sem og amman, afinn og aðrir sem telja sig eiga eitthvað í barninu :) ). Eins og margir vita fóru þær systur (Halldórsdætur) til London í byrjun apríl og gistu hjá Önnu og Kára í nokkrar nætur til að hita upp fyrir mótið, og áttu góða en frekar snjóuga daga hjá þeim. Anna Helga sendi mér myndir og gaf leyfi fyrir því að ég setti þær hér á síðuna.Einhverjir hafa ekki enn ákveðið hvort þeir muni koma eða ekki en þangað til fólk afboðar sig, vonum við að það komi. Svo ef einhver hefur áhrif hjá veðurguðunum, má sá hinn sami reyna að semja um gott veður handa okkur.
þriðjudagur, 29. apríl 2008
Framvinda mála
Það er svo sem ekki mikið að frétta en "nefndin" (við Örn), hélt óformlegan fund á laugardaginn þegar Örn og fjölskylda kom við hjá mér og þáði kaffisopa milli skíðaæfinga í Hlíðarfjalli og sundferðar.
Nú hef ég fengið mest af þeim upplýsingum sem ég þarf frá fólki fyrir niðjatalið en þó er enn eitthvað eftir. Gummi hefur tekið að sér að setja saman æviágrip um ömmu og afa og safna myndum sem gæti verið gaman að hafa með í niðjatalinu. Ef þið hafið eitthvað sem þið teljið að eigi þar heima, þá endilega hafið samband við mig eða Gumma.
Við höfum, eins og áður kom fram, fengið leyfi til að koma í Syðri-Brekkur og Sætún og nú höfum við einnig fengið leyfi til að koma í Eiði og Hallgilsstaði. Mér skilst að það verði dúntaka í gangi á Eiði þannig að við þurfum að haga okkur í samræmi við það.
Það stefnir í góða þátttöku, 41 hefur gefið jákvætt svar, en einhverjir hafa enn ekki getað gefið svar, af ýmsum ástæðum og er það allt í góðu. Vonandi komast bara sem flestir á Langanesið þessa helgi :)

sunnudagur, 6. apríl 2008
Heimsókn í Syðri-Brekkur
Eins og þið vitið langar okkur að heimsækja nokkra staði sem tengjast ömmu og afa, laugardaginn 28. júní. Í innleggi fyrir nokkru síðan (hugmynd að dagskrá) nefndum við Eiði, Sætún og Hallgilsstaði í því sambandi en Syðri-Brekkur komu fljótt til tals líka. Og í dag hringdi okkar yndislega frænka, Kristín Kristjánsdóttir á Syðri-Brekkum, í mig og spurði hvort við myndum hafa áhuga á að heimsækja Syðri-Brekkur og bauðst til að taka á móti okkur, sem ég auðvitað þáði.
Nú hafa 40 manns skráð sig á mótið. Gagnaöflun vegna niðjatalsins er í fullum gangi en einhverjir mega eiga von á hringingu frá annað hvort mér eða Erni fljótlega vegna þess :)
Nú hafa 40 manns skráð sig á mótið. Gagnaöflun vegna niðjatalsins er í fullum gangi en einhverjir mega eiga von á hringingu frá annað hvort mér eða Erni fljótlega vegna þess :)
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)